Fréttir

true

Fimmta leikritið sem Lauga setur á svið

Leikfélagið Lauga í Snæfellsbæ frumsýndi um helgina leikritið Beint í æð í félagsheimilinu Kifi í Ólafsvík. Guðmundur Jensson, formaður félagsins, segir í samtali við Skessuhorn að leikritið sé breskur farsi sem gerist á spítala. Hinn kunni breski leikritahöfundur Ray Cooney hafi samið ótal leikrit sem náð hafi miklum vinsældum, verk á borð við Með vífið…Lesa meira

true

Suðaustan hvassviðri eða stormur næsta sólarhring

Gular viðvaranir taka gildi kl. 20 í kvöld um allt vestanvert landið. Við Breiðafjörð og Faxaflóa verður hvassviðri eða stormur 15-23 m/s og rigning. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s. Hvassast verður á Snæfellsnesi, en einnig á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Viðvaranir falla úr gildi síðdegis á…Lesa meira

true

Lýst er eftir 72 ára karlmanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni, 72 ára. Nikulás er rúmir 170 cm á hæð og þéttvaxinn. Ekkert hefur spurst til hans síðan þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn. Talið er líklegt að hann haldi til í Reykjavík, einhversstaðar við Hvalfjörð eða á Akranesi. Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í grænan þunnan sumarjakka,…Lesa meira

true

Snæfell lagði Hamar í hörkuleik í Hveragerði

Snæfell vann góðan útisigur á Hamri, 84:78, í Bæjarins Bestu deild karla í körfuknattleik í Hveragerði í gærkvöldi. Hólmarar byrjuðu leikinn af miklum krafti, misstu forskotið niður en náðu aftur undirtökunum í síðari hálfleik og tryggðu sér að lokum sex stiga sigur. Snæfell var mun sterkari aðilinn í fyrsta leikhluta og leiddi 26:12 að honum…Lesa meira

true

Skallagrímur vaknaði of seint gegn Breiðabliki

Skallagrímur mátti sætta sig við 13 stiga tap, 104:91, gegn Breiðabliki í Bæjarins Bestu deild karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi. Borgnesingar lentu snemma undir, áttu erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en sýndu mun betri leik eftir hlé og náðu að minnka muninn verulega áður en yfir lauk. Breiðablik hafði sex stiga…Lesa meira

true

Betri einangrun og hitastýring geta lækkað húshitunarkostnað

Þegar kólnar í veðri eykst orkuþörf húsa og því getur verið ástæða til að huga að leiðum til að draga úr hitatapi og bæta orkunýtingu. Bætt einangrun, þétting húsa og markvissari stýring hitakerfa geta skilað umtalsverðum ávinningi, en jafnframt þarf að tryggja nægilega loftræsingu til að viðhalda heilnæmu innilofti. Þetta er meðal þess sem fjallað…Lesa meira

true

Um 34 þúsund undir lágtekjumörkum

Um 34 þúsund Íslendingar, eða 8,5% þjóðarinnar, voru undir lágtekjumörkum árið 2026 samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Hlutfallið hefur haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár, en staða leigjenda, barna og fólks með erlendan bakgrunn er talsvert lakari en annarra hópa. Tæplega fjórðungur þeirra sem búa í leiguhúsnæði, eða 23,2%, var undir lágtekjumörkum samanborið við 4,2% þeirra…Lesa meira

true

Leita að nöfnum á íþróttamiðstöð og sundlaug í Búðardal

Dalabyggð hefur efnt til nafnasamkeppni fyrir nýju íþróttamiðstöðina og sundlaugina í Búðardal og óskar eftir hugmyndum frá íbúum. Sérstaklega er kallað eftir nöfnum sem tengjast á einhvern hátt og mynda skemmtilega heild. Tekið verður við tillögum til kl. 23.45 miðvikudaginn 25. nóvember. Að því loknu verða bestu hugmyndirnar valdar og lagðar í íbúakosningu þar sem…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður auglýsir menningarstyrki fyrir árið 2027

Akraneskaupstaður hefur opnað fyrir umsóknir um menningarstyrki ársins 2027 en umsóknarfrestur er til og með 10. janúar næstkomandi. Markmið styrkjanna er að efla menningarlíf bæjarins og styðja við fjölbreytt verkefni í samræmi við menningarstefnu sveitarfélagsins. Einstaklingar, hópar, félög, stofnanir og fyrirtæki geta sótt um styrki. Við úthlutun verður einkum horft til verkefna og viðburða sem…Lesa meira