
Listnemar við Fjölbrautaskóla Vesturlands skreyttu glugga í Eymundsson við upphaf Vökudaga í haust. Ljósm. ki
Akraneskaupstaður auglýsir menningarstyrki fyrir árið 2027
Akraneskaupstaður hefur opnað fyrir umsóknir um menningarstyrki ársins 2027 en umsóknarfrestur er til og með 10. janúar næstkomandi. Markmið styrkjanna er að efla menningarlíf bæjarins og styðja við fjölbreytt verkefni í samræmi við menningarstefnu sveitarfélagsins.