
Leita að nöfnum á íþróttamiðstöð og sundlaug í Búðardal
Dalabyggð hefur efnt til nafnasamkeppni fyrir nýju íþróttamiðstöðina og sundlaugina í Búðardal og óskar eftir hugmyndum frá íbúum. Sérstaklega er kallað eftir nöfnum sem tengjast á einhvern hátt og mynda skemmtilega heild.