
Fimmta leikritið sem Lauga setur á svið
Leikfélagið Lauga í Snæfellsbæ frumsýndi um helgina leikritið Beint í æð í félagsheimilinu Kifi í Ólafsvík. Guðmundur Jensson, formaður félagsins, segir í samtali við Skessuhorn að leikritið sé breskur farsi sem gerist á spítala. Hinn kunni breski leikritahöfundur Ray Cooney hafi samið ótal leikrit sem náð hafi miklum vinsældum, verk á borð við Með vífið í lúkunum, Sex í sveit og Sex í sama rúmi. „Hið síðast nefnda var einmitt fyrsta leikritið sem við í Leikfélaginu Laugu settum upp árið 2022,“ segir Guðmundur. Hann segir að mörg ný andlit séu að spreyta sig í fyrsta skipti á sviði núna ásamt öðrum sem hafa komið fram í verkum leikfélagsins áður. Frumsýning var á föstudaginn og svo eru sýningar í kvöld, sunnudag, miðvikudag og loks er aukasýning á laugardaginn. Ágæt aðsókn hefur verið að verkinu.