
Suðaustan hvassviðri eða stormur næsta sólarhring
Gular viðvaranir taka gildi kl. 20 í kvöld um allt vestanvert landið. Við Breiðafjörð og Faxaflóa verður hvassviðri eða stormur 15-23 m/s og rigning. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem staðbundið geta farið yfir 35 m/s. Hvassast verður á Snæfellsnesi, en einnig á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Viðvaranir falla úr gildi síðdegis á morgun.