
Um 34 þúsund undir lágtekjumörkum
Um 34 þúsund Íslendingar, eða 8,5% þjóðarinnar, voru undir lágtekjumörkum árið 2026 samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Hlutfallið hefur haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár, en staða leigjenda, barna og fólks með erlendan bakgrunn er talsvert lakari en annarra hópa. Tæplega fjórðungur þeirra sem búa í leiguhúsnæði, eða 23,2%, var undir lágtekjumörkum samanborið við 4,2% þeirra sem búa í eigin húsnæði. Þá bjuggu 13,1% barna á heimilum undir lágtekjumörkum og hlutfallið var 16,7% meðal fólks með erlendan bakgrunn, á móti 5,5% meðal þeirra sem hafa innlendan bakgrunn. Lágtekjuhlutfall karla mældist 9,8% en 7,2% meðal kvenna. Hlutfall landsmanna undir lágtekjumörkum hefur verið á bilinu 7,4–9% frá árinu 2021 og eru breytingar milli ára innan skekkjumarka.