Lýst er eftir 72 ára karlmanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni, 72 ára. Nikulás er rúmir 170 cm á hæð og þéttvaxinn. Ekkert hefur spurst til hans síðan þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn. Talið er líklegt að hann haldi til í Reykjavík, einhversstaðar við Hvalfjörð eða á Akranesi. Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í grænan þunnan sumarjakka, gallabuxur og strigaskó með bláan bakpoka. Meðfylgjandi mynd er af Nikulási.

„Þeir sem hafa vitneskju um hvar Nikulás gæti hafa haldið sig undanfarna daga eða hvar hann er staddur, vinsamlega hringið í 112 eða sendið tölvupóst á 0776@lrh.is,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.