Fréttir

true

Átta verkefni á Vesturlandi fengu úr Hvatasjóði

Átta verkefni íþróttafélaga á Vesturlandi fengu í síðustu viku úthlutað tæpum þremur milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Félög á Akranesi fengu tæpar tvær milljónir króna af þeirri upphæð. Hæsta styrkinn á Vesturlandi, 700 þúsund krónur, hlaut Fimleikafélag ÍA fyrir verkefni sem snýr að fimleikum fyrir börn með fatlanir og er unnið í samstarfi við ÍA.…Lesa meira

true

Almennt meira um verðhækkanir en verðlækkanir

Í september boðuðu aðilar á smásölumarkaði verðlækkanir og verðfrystingar sem framlag þeirra til aukins verðstöðugleika. Verðlagseftirlit ASÍ hefur nú mælt aukna tíðni verðlækkana en um þriðjungur vara í Bónus lækkaði í verði á tímabilinu ágúst til nóvember. Í öðrum verslunum var hlutfallið lægra og meira um mældar verðhækkanir heldur en verðlækkanir. Því má við þetta…Lesa meira

true

Forysta bænda á ferð um landið

Árleg fundaferð stjórnar og starfsfólks Bændasamtaka Íslands hefur staðið yfir síðustu daga. Á föstudaginn var komið að fundi sem haldinn var í Ársal á Hvanneyri. Þar mættu um sex tugir gesta, um þriðjungur starfandi bændur en auk þess nemendur skólans og ýmsir aðrir. Yfirskrift fundanna er: „Lausnin er landbúnaður.“ Trausti Hjálmarsson formaður BÍ setti fundinn…Lesa meira

true

Gospelmessa í Stykkishólmskirkju

Vel var mætt í Stykkishólmskirkju í gær þegar gospelmessa fór þar fram. Séra Hilda María Sigurðardóttir tók þátt í söngnum með kirkjukórnum og fluttu þau saman lagið „Oh Happy Day,“ sem var fyrsta lag í messunni. Að því loknu hélt kirkjukórinn áfram söngnum og flutti fleiri gospellög á meðan séra Hilda María stýrði guðsþjónustunni. László…Lesa meira

true

Óku bíl sínum út í Kleifá á Snæfellsnesi

Tveir erlendir ferðamenn voru í bíl sem hafnaði í Kleifá í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi í gærmorgun. Útkall barst björgunaraðilum klukkan 10:42. Annar farþeginn komst út úr bílnum af sjálsdáðum en hinn ekki. Fyrir tilviljun var björgunarsveitarmaður úr Elliða á ferðinni og var kominn á vettvang þegar útkallið barst. Tveir björgunarsveitarmenn til viðbótar komu…Lesa meira

true

Kólnar og gæti fryst á blauta vegi

Í dag verður hægur vindur, styttir upp, léttir til og frystir, víða á blauta vegi. Í hugleiðingum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir: „Það má því búast við talsverðri hálku víða í dag, einkum um norðanvert landið en einnig suðvestantil, og jafnvel verður flughált á köflum.“Lesa meira

true

Talmeinafræðingar hefja störf í grunnskólum

Sambærileg þjónusta til skoðunar á landsbyggðinni Talmeinafræðingar frá Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hófu í síðust viku störf í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tveggja ára tilraunaverkefni að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins sem miðar að því að stytta bið eftir talmeinaþjónustu og færa hana nær börnunum. Einn talmeinafræðingur verður staðsettur í hverjum skóla og…Lesa meira

true

Sýna nemendagarðana á miðvikudaginn

Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns fengu Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar í haust afhentar 12 nýjar íbúðir sem hýsa í vetur 17 nemendur. „Af því tilefni ætluð við að hafa opið hús að Borgarbraut 63, miðvikudaginn 11. nóvember milli kl. 16:00 – 18:00. Nemendur munu taka á móti gestum, opna herbergi sín og sýna…Lesa meira

true

Rúmlega helmingur leigjenda fékk skertar húsnæðisbætur í október

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) greiddi á landsvísu tæplega 966 milljónir króna í húsnæðisstuðning vegna leigu í október. Alls fengu 18.087 heimili almennar húsnæðisbætur en rúmlega helmingur þeirra, eða 53%, fékk skertar greiðslur. Helstu ástæður skerðinga voru tekjur eða eignir umfram viðmiðunarmörk og í sumum tilvikum lág húsaleiga. Hlutfall skerðinga var mismunandi eftir tegund leiguhúsnæðis. Hæst…Lesa meira

true

Hófu framkvæmdir við borplan

Síðastliðinn föstudag hóf verktakafyrirtæki framkvæmdir við austurenda Jaðarsbrautar á Akranesi þar sem Veitur ætla að freista þess að finna heitt vatn. Framkvæmdir munu standa yfir í vetur. Nú fara fram jarðvegsskipti og þá verður gámum komið upp á svæðinu til að skerma það af fyrir nærliggjandi íbúðarhúsum, en borplanið er einungis fimmtán metra frá næstu…Lesa meira