
Rúmlega helmingur leigjenda fékk skertar húsnæðisbætur í október
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) greiddi á landsvísu tæplega 966 milljónir króna í húsnæðisstuðning vegna leigu í október. Alls fengu 18.087 heimili almennar húsnæðisbætur en rúmlega helmingur þeirra, eða 53%, fékk skertar greiðslur. Helstu ástæður skerðinga voru tekjur eða eignir umfram viðmiðunarmörk og í sumum tilvikum lág húsaleiga.