
Óku bíl sínum út í Kleifá á Snæfellsnesi
Tveir erlendir ferðamenn voru í bíl sem hafnaði í Kleifá í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi í gærmorgun. Útkall barst björgunaraðilum klukkan 10:42. Annar farþeginn komst út úr bílnum af sjálsdáðum en hinn ekki. Fyrir tilviljun var björgunarsveitarmaður úr Elliða á ferðinni og var kominn á vettvang þegar útkallið barst. Tveir björgunarsveitarmenn til viðbótar komu beint að heiman frá sér, annar þeirra á dráttarvél. Í útkallinu voru aðstæður hættulegar fyrir björgunarmenn, en vegna mikillar úrkomu um nóttina og dagana áður var Kleifá óvenjulega vatnsmikill. Bíllinn fór út af austan við ána við enda vegriðsins og staðnæmdist í ánni á vesturbakkanum ofar vegar. „Svo mikill var straumþunginn að þaðan fór bíllinn gegnum ræsið og staðnæmdist á nokkru dýpi og í talsverðum straumi neðan við veginn,“ segir í færslu björgunarsveitarinnar Elliða á Facebook reikningi hennar um slysið. Draga þurfti bílinn upp úr ánni til að koma til bjargar þeim sem var fastur í honum. Sá var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík, en hinn með sjúkrabíl til aðhlynningar.
Í þessu útkalli komu björgunarsveitarmenn frá Elliða með bjargir sem gátu nýst á vettvangi og tóku þátt í að rýma vettvang og tryggja aðstæður í nágrenni slyss áður en lögregla og aðrir björgunaraðilar náðu á vettvang. Björgunarsveitarmenn voru síðan eftir hádegið beðnir af lögreglu að leita að farangri úr bílnum sem talið var að áin hefði hrifið með sér. „Var því gengið með bökkum Kleifár niður að Laxá. Tvær ferðatöskur fundust við leitina, auk nokkurra lausra muna, og voru töskurnar á grynningum í Kleifá, önnur rétt rúman kílómetra frá slysstað, en hin í tæplega tveggja kílómetra fjarlægð, nálægt ármótunum við Laxá,“ segir í lýsingu Elliða af aðgerðum.
Snæfellsvegi var lokað við slysið til klukkan 14 meðan viðbragðsaðilar unnu á vettvangi. Talsvert löng röð bíla myndaðist beggja vegna við slysstaðinn. Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.