
Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ og sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga. Ljósm. umfi.is
Átta verkefni á Vesturlandi fengu úr Hvatasjóði
Átta verkefni íþróttafélaga á Vesturlandi fengu í síðustu viku úthlutað tæpum þremur milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Félög á Akranesi fengu tæpar tvær milljónir króna af þeirri upphæð. Hæsta styrkinn á Vesturlandi, 700 þúsund krónur, hlaut Fimleikafélag ÍA fyrir verkefni sem snýr að fimleikum fyrir börn með fatlanir og er unnið í samstarfi við ÍA. Íþróttabandalag Akraness hlaut tvo styrki upp á 500 þúsund krónur hvorn, fyrir verkefnin Brú til þátttöku og Nýtt upphaf með ÍA.