
Ársalurinn var þétt setinn. Ljósm. mm
Forysta bænda á ferð um landið
Árleg fundaferð stjórnar og starfsfólks Bændasamtaka Íslands hefur staðið yfir síðustu daga. Á föstudaginn var komið að fundi sem haldinn var í Ársal á Hvanneyri. Þar mættu um sex tugir gesta, um þriðjungur starfandi bændur en auk þess nemendur skólans og ýmsir aðrir. Yfirskrift fundanna er: „Lausnin er landbúnaður.“