
Sýna nemendagarðana á miðvikudaginn
Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns fengu Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar í haust afhentar 12 nýjar íbúðir sem hýsa í vetur 17 nemendur. „Af því tilefni ætluð við að hafa opið hús að Borgarbraut 63, miðvikudaginn 11. nóvember milli kl. 16:00 - 18:00. Nemendur munu taka á móti gestum, opna herbergi sín og sýna hvernig þeir hafa komið sér fyrir. Við erum ákaflega stolt af þeirri flottu aðstöðu sem nemendur okkar hafa til umráða og langar okkur að leyfa öllum sem vilja að koma og sjá,“ segir í tilkynningu.