
Séra Hilda María og kirkjukórinn fluttu „Oh Happy Day“ í upphafi messunnar. Ljósm: Guðrún Svana Pétursdóttir
Gospelmessa í Stykkishólmskirkju
Vel var mætt í Stykkishólmskirkju í gær þegar gospelmessa fór þar fram. Séra Hilda María Sigurðardóttir tók þátt í söngnum með kirkjukórnum og fluttu þau saman lagið „Oh Happy Day,“ sem var fyrsta lag í messunni. Að því loknu hélt kirkjukórinn áfram söngnum og flutti fleiri gospellög á meðan séra Hilda María stýrði guðsþjónustunni. László Pető kórstjóri lék undir á píanó og með honum léku nokkrir félagar úr Tónlistarskólanum í Stykkishólmi á önnur hljóðfæri. Gestir voru hvattir til að taka virkan þátt í messunni og klöppuðu meðal annars eftir hvert lag, sem skapaði líflega og skemmtilega stemningu í kirkjunni.