Almennt meira um verðhækkanir en verðlækkanir

Í september boðuðu aðilar á smásölumarkaði verðlækkanir og verðfrystingar sem framlag þeirra til aukins verðstöðugleika. Verðlagseftirlit ASÍ hefur nú mælt aukna tíðni verðlækkana en um þriðjungur vara í Bónus lækkaði í verði á tímabilinu ágúst til nóvember. Í öðrum verslunum var hlutfallið lægra og meira um mældar verðhækkanir heldur en verðlækkanir. Því má við þetta bæta að gengi íslensku krónunnar hefur á liðnum mánuðum styrkst talsvert og virðist sem sú styrking sé ekki að skila sér inn í lækkun á verði innfluttra matvæla.