Hálka. Ljósm. Vikublaðið

Kólnar og gæti fryst á blauta vegi

Í dag verður hægur vindur, styttir upp, léttir til og frystir, víða á blauta vegi. Í hugleiðingum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir: „Það má því búast við talsverðri hálku víða í dag, einkum um norðanvert landið en einnig suðvestantil, og jafnvel verður flughált á köflum.“