Fréttir

true

Gleðivika og metnaður í skreytingum

Það var líf og fjör á Hjúkrunarheimilinu Höfða í dag. Allar deildir heimilisins voru skreyttar í tilefni þess að sérstakri gleðiviku er að ljúka. Árshátíð starfsfólks verður í Miðgarði morgun og hefð fyrir því að skreyta heimilið í tilefni þess. Keppni var um best skreyttu deildina og dómarar fengnir úr efsta lagi stjórnsýslunnar; Sturlaugur bæjarstjóri…Lesa meira

true

Mótvindur í ferðaþjónustu ræddur á fjölmennum fundi í Borgarnesi

„Mótvindur – eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustu,“ var yfirskrift fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær. Fundurinn var haldinn í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Vesturlands, Markaðsstofu Vestfjarða og Markaðsstofu Norðurlands og var vel sóttur af fulltrúum ferðaþjónustu, sveitarfélaga og stjórnmálaflokka. Á fundinum var sjónum beint…Lesa meira

true

Svipmyndir af listagöngu á Akranesi – myndasyrpa

Vökudagar, tíu daga menningarhátíð á Akranesi, var sett síðdegis í gær. Það gerði Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri. Við sama tækifæri voru menningarverðlaun Akraneskaupstaðar afhent sem og árlegar umhverfisviðurkenningar, eins og fram kom í fréttum hér á vefnum í morgun. Eftir að setningu hátíðarinnar lauk tók við dagskrá víðsvegar um bæinn, en alls er boðið upp á…Lesa meira

true

Komu áhöfn skútu til aðstoðar

Undir kvöld í gær boðaði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar Björgunarfélag Akraness út vegna rúmlega 20 metra langrar skútu sem var í vanda stödd um 12 sjómílur vestur af Akranesi. Hafdís SK kom fyrst að skútunni og veitti aðstoð á vettvangi. Björgunarskipið Margrét Guðbrandsdóttir frá Akranesi var við æfingar þegar útkallið barst og hélt áhöfn þess þegar í…Lesa meira

true

Gagnaver eru hratt vaxandi útflutningsgrein

Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI) kemur fram að gagnaver eru ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi námu 35,2 milljörðum króna á fyrri hluta þessa árs samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tíma í fyrra. Ef fram fer sem horfir verða útflutningstekjur greinarinnar í ár um 72 milljarðar króna sem er…Lesa meira

true

Atvinnuleysi er nú 5,7%

Fjöldi atvinnulausra í september síðastliðnum, á aldrinum 16 til 74 ára, var 15.300 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,7%, hlutfall starfandi var 75% og atvinnuþátttaka 79,6%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentustig á milli ágúst og september 2026, hlutfall starfandi hækkaði um 1,2 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,4 prósentustig.Lesa meira

true

Stefna að hertum viðurlögum við akstri utan vega

Stjórnvöld fá auknar heimildir til þess að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ef frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem nú er til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda nær fram að ganga. Frumvarpsdrögin fela í sér margháttaðar umbætur á náttúruverndarlögum og lúta meðal annars að uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum og skýrari heimildum til friðlýsingar og…Lesa meira

true

Samið um uppbyggingu þekkingarseturs í Stykkishólmi

Samningur um uppbyggingu þekkingarseturs í Stykkishólmi og þekkingarnets við Breiðafjörð var undirritaður með táknrænum hætti í Stykkishólmi í gær. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kom til bæjarins af því tilefni og heimsótti Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla að undirritun lokinni. Samningurinn var gerður milli Sveitarfélagsins Stykkishólms og ráðuneytisins og var frágenginn rafrænt í sumar. Jakob…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar 2026

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar fyrir árið 2026 voru afhentar síðdegis í gær í fimm mismunandi flokkum. Viðurkenningarnar eru veittar ár hvert, en þeim er ætlað að auka umhverfisvitund, skapa umhyggju fyrir bænum og umhverfi hans og vekja þannig athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli. Það var Ragnar B Sæmundsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs…Lesa meira

true

Heima Skagi hlýtur menningarverðlaun Akraneskaupstaðar

Við setningu Vökudaga á Akranesi síðdegis í gær voru menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2026 afhent. Þau hlýtur tónlistarhátíðin Heima-Skagi og Ólafur Páll Gunnarsson sem staðið hefur í stafni frá upphafi árið 2019. Verðlaunin eru veitt fyrir; „framúrskarandi framlag til menningarlífs bæjarins.“ Liv Áse Skarstad, formaður mennta- og menningarráðs, afhenti Ólafi Páli verðlaunin en þetta var í tuttugasta…Lesa meira