
Hér fara fram pallborðsumræður með þátttöku sex þingmanna. Texti og mynd: HIG
Mótvindur í ferðaþjónustu ræddur á fjölmennum fundi í Borgarnesi
„Mótvindur – eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustu,“ var yfirskrift fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær. Fundurinn var haldinn í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Vesturlands, Markaðsstofu Vestfjarða og Markaðsstofu Norðurlands og var vel sóttur af fulltrúum ferðaþjónustu, sveitarfélaga og stjórnmálaflokka.