Hér á landi starfa þrjú stór gagnaver með fimm starfsstöðvar víða um land. Á myndinni er gagnaver atNorth á Akureyri. Ljósm. atNorth

Gagnaver eru hratt vaxandi útflutningsgrein

Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI) kemur fram að gagnaver eru ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi námu 35,2 milljörðum króna á fyrri hluta þessa árs samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tíma í fyrra. Ef fram fer sem horfir verða útflutningstekjur greinarinnar í ár um 72 milljarðar króna sem er aukning um 74% frá fyrra ári. Áætlað er að fjárfestingar gagnaveranna nemi nær 57 milljörðum króna í ár samanborið við tæpa 29 milljarða króna árið 2025. Aukningin milli ára er 27,7 ma.kr. eða 95%. Framlag greinarinnar til hagvaxtar í ár er því talsvert í formi aukins útflutnings en einnig í formi vaxandi fjárfestinga. Ef þessar áætlanir SI standast munu gagnaver skila um helmingi af útflutningsverðmæti þorsks á þessu ári.