Liv Ása Skarstad formarður mennta- og menningarráðs, Ólafur Páll Gunnarsson og Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri. Ljósm. mm

Heima Skagi hlýtur menningarverðlaun Akraneskaupstaðar

Við setningu Vökudaga á Akranesi síðdegis í gær voru menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2026 afhent. Þau hlýtur tónlistarhátíðin Heima-Skagi og Ólafur Páll Gunnarsson sem staðið hefur í stafni frá upphafi árið 2019. Verðlaunin eru veitt fyrir; „framúrskarandi framlag til menningarlífs bæjarins.“