
Verðlaunahafar með skildi og blóm.
Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar 2026
Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar fyrir árið 2026 voru afhentar síðdegis í gær í fimm mismunandi flokkum. Viðurkenningarnar eru veittar ár hvert, en þeim er ætlað að auka umhverfisvitund, skapa umhyggju fyrir bænum og umhverfi hans og vekja þannig athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli. Það var Ragnar B Sæmundsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs sem afhenti verðlaunin.