Skemmdir á viðkvæmu landi eftir akstur mótorhjóla við Krókavatn á Arnarvatnsheiði. Ljósm. úr safni Skessuhorns / Snorri Jóhannesson

Stefna að hertum viðurlögum við akstri utan vega

Stjórnvöld fá auknar heimildir til þess að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ef frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem nú er til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda nær fram að ganga. Frumvarpsdrögin fela í sér margháttaðar umbætur á náttúruverndarlögum og lúta meðal annars að uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum og skýrari heimildum til friðlýsingar og friðunar í hafi. Þar eru jafnframt lagðar til breytingar er snúa að úrræðum stjórnvalda til viðbragða við ólögmætum utanvegaakstri.