Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra undirrita samninginn um þekkingarsetrið. Ljósm. Skessuhorn / GSP

Samið um uppbyggingu þekkingarseturs í Stykkishólmi

Samningur um uppbyggingu þekkingarseturs í Stykkishólmi og þekkingarnets við Breiðafjörð var undirritaður með táknrænum hætti í Stykkishólmi í gær. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kom til bæjarins af því tilefni og heimsótti Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla að undirritun lokinni. Samningurinn var gerður milli Sveitarfélagsins Stykkishólms og ráðuneytisins og var frágenginn rafrænt í sumar.