
Komu áhöfn skútu til aðstoðar
Undir kvöld í gær boðaði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar Björgunarfélag Akraness út vegna rúmlega 20 metra langrar skútu sem var í vanda stödd um 12 sjómílur vestur af Akranesi. Hafdís SK kom fyrst að skútunni og veitti aðstoð á vettvangi. Björgunarskipið Margrét Guðbrandsdóttir frá Akranesi var við æfingar þegar útkallið barst og hélt áhöfn þess þegar í stað til móts við skútuna. Vegna stærðar skútunnar þurfti þó öflugra skip til að koma henni örugglega til hafnar og því tók Björgunarskipið Kristrún á Bjargi við aðgerðinni og dró skútuna til hafnar.
Aðgerðin gekk vel og skútan komst heilu og höldnu til Hafnarfjarðar um klukkan 22:00. Björgunarskipið Kristrún á Bjargi sneri að því loknu til heimahafnar á Akranesi, þangað sem það kom um miðnætti.