
Á Safarí ganginum (Jaðri). Ljósmyndir: MM
Gleðivika og metnaður í skreytingum
Það var líf og fjör á Hjúkrunarheimilinu Höfða í dag. Allar deildir heimilisins voru skreyttar í tilefni þess að sérstakri gleðiviku er að ljúka. Árshátíð starfsfólks verður í Miðgarði morgun og hefð fyrir því að skreyta heimilið í tilefni þess. Keppni var um best skreyttu deildina og dómarar fengnir úr efsta lagi stjórnsýslunnar; Sturlaugur bæjarstjóri og Vera Líndal menningarfulltrúi Akraneskaupstaðar fengu það erfiða hlutskipti.