Fréttir

true

Bleikur dagur í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar

Starfsfólk stjórnsýsluhúss Dalabyggðar klæddist bleiku í dag, miðvikudaginn 21. október, í tilefni af Bleika deginum. Með því vill starfsfólkið sýna samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Af þessu tilefni var einnig boðið upp á morgunkaffi með bleikum veitingum og skreytingum. Bleiki dagurinn er árleg áminning um mikilvægi forvarna, snemmgreiningar og…Lesa meira

true

Frá heimspeki Forn-Grikkja til samfélagsgerðar nútímans

„Það er heilt samfélag á bak við þetta Excel-skjal“ Jovana Pavlović sendir frá sér sína fyrstu bók; Antithesis – Sjálfsmynd og samfélagið þar sem hún beinir sjónum að samfélaginu, einstaklingshyggju og þeim öflum sem móta líf okkar og hugsun. Jovana, sem er búsett í Borgarnesi, er óhrædd við að ögra viðteknum hugmyndum og vill með…Lesa meira

true

Hildur fékk veiðarfæri í skrúfuna

Í gærmorgun var áhöfn björgunarskipsins Sigurvins á Siglufirði kölluð út vegna Hildar SH, 475 tonna fiskiskips, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvana. Skipið var þá statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar. Átta manna áhöfn var um borð, en ágætis veður var á staðnum og áhöfnin ekki í neinni…Lesa meira

true

Víða hálka á götum og gangstéttum

Nú í morgun hafði frosið á raka jörð og því er víða hálka og ástæða til að hvetja alla til að fara varlega í umferðinni. Hitastig næstu daga verður um eða undir frostmarki, en á laugardaginn verður talsvert frost á öllu landinu. Förum varlega!Lesa meira

true

Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun á Akranesi

Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun, 18 ára og eldra, hefst í World Class á Akranesi mánudaginn 26. október. Markmiðið er að efla hreyfingu og vellíðan þátttakenda og kynna þeim undirstöðuatriði líkamsræktar í öruggu og hvetjandi umhverfi. Námskeiðið verður haldið á mánudögum kl. 13.30–14.15 undir leiðsögn Geralds Brimis Einarssonar, þjálfara hjá World Class. Áhersla verður…Lesa meira

true

Kosið verður í dreifbýlisráð 7. nóvember

Kosið verður í dreifbýlisráð sveitarfélagsins Stykkishólms laugardaginn 7. nóvember. Kjörfundur fer fram í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit og verður kjörstaður opinn frá klukkan 10 til 18. Kosningarrétt hafa íbúar á því svæði sem áður tilheyrði Helgafellssveit, samkvæmt sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014, auk íbúa í Ögri. Kjörgengir eru þeir sem eiga skráð lögheimili á svæðinu.…Lesa meira

true

Héraðssýningar á Vesturlandi – Mýrahrúturinn

Að kvöldi 17. október var þriðja héraðssýningin á Vesturlandi haldin í Mýrdal, eins og á síðasta ári, í frábærri aðstöðu í glæsilegum fjárhúsum. Þarna var framundan mikil barátta margra öflugra lambhrúta um Mýrahrútinn, sem er steinskjöldur sem eigandi besta hrútsins fær þann heiður að varðveita til næstu sýningar. Síðasta árið var steinninn geymdur í Dalsmynni.…Lesa meira

true

Héraðssýningarnar á Vesturlandi haustið 2026 – Snæfellsnes vestan girðingar

Önnur héraðssýningin á Vesturlandi haustið 2026 var sýningin vestan girðingar á Snæfellsnesi. Nokkur ár eru síðan bændur í sýslunni austan girðingar sögðu sig úr lögum við þetta áratuga sýningahald á starfssvæði búnaðarsambandsins sem áður spannaði sýsluna alla. Félagsleg uppbygging er því miður hrunin og sýslum og búnaðarsamböndum slátrað. Þegar hið lögboðna sýningahald var aflagt 1997…Lesa meira

true

Undirbúa ljósmyndasýningu Vitans

Ljósmyndasýning Vitans, félags áhugaljósmyndara á Akranesi, verður opnuð klukkan 18 fimmtudaginn 22. október á Innnesvegi 1 á Akranesi (við hliðina á Kallabakaríi) og verður opin til kl. 21. Boðið verður upp á veitingar. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 16-19 og 11-17 um helgar, en henni lýkur 1. nóvember. Á meðfylgjandi myndum eru félagar…Lesa meira

true

Þjófnaðir og líkamsárás meðal verkefna lögreglu

Í liðinni viku voru 56 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Auk auki voru 552 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex eigendur ökutækja voru kærðir fyrir að leggja bifreið sinni þar sem…Lesa meira