
Kosið verður í dreifbýlisráð 7. nóvember
Kosið verður í dreifbýlisráð sveitarfélagsins Stykkishólms laugardaginn 7. nóvember. Kjörfundur fer fram í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit og verður kjörstaður opinn frá klukkan 10 til 18. Kosningarrétt hafa íbúar á því svæði sem áður tilheyrði Helgafellssveit, samkvæmt sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014, auk íbúa í Ögri. Kjörgengir eru þeir sem eiga skráð lögheimili á svæðinu. Dreifbýlisráði var komið á fót í kjölfar sameiningar Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar til að tryggja íbúum dreifbýlisins aukin áhrif á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í ráðinu sitja þrír fulltrúar. Sveitarstjórn skipar einn úr sínum röðum en íbúar dreifbýlisins kjósa tvo fulltrúa og tvo varamenn í beinni kosningu. Atkvæði verða talin að kjörfundi loknum og úrslit birt á vef sveitarfélagsins, stykkisholmur.is