
Héraðssýningar á Vesturlandi – Mýrahrúturinn
Að kvöldi 17. október var þriðja héraðssýningin á Vesturlandi haldin í Mýrdal, eins og á síðasta ári, í frábærri aðstöðu í glæsilegum fjárhúsum. Þarna var framundan mikil barátta margra öflugra lambhrúta um Mýrahrútinn, sem er steinskjöldur sem eigandi besta hrútsins fær þann heiður að varðveita til næstu sýningar. Síðasta árið var steinninn geymdur í Dalsmynni.