
Þorvaldur Sveinsson áhugaljósmyndari og þúsundþjala smiður að bora. Ljósm. ki
Undirbúa ljósmyndasýningu Vitans
Ljósmyndasýning Vitans, félags áhugaljósmyndara á Akranesi, verður opnuð klukkan 18 fimmtudaginn 22. október á Innnesvegi 1 á Akranesi (við hliðina á Kallabakaríi) og verður opin til kl. 21. Boðið verður upp á veitingar. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 16-19 og 11-17 um helgar, en henni lýkur 1. nóvember. Á meðfylgjandi myndum eru félagar í Vitanum að hefja uppsetningu mynda sem verða á sýningunni. Þar verða sýndar fjölbreyttar myndir eftir 13 áhugaljósmyndara. Bjóða þeir alla velkomna. Sýningin er hluti af dagskrá Vökudaga á Akranesi sem standa yfir frá 22. október til 1. nóvember.
-fréttatilkynning
