Gestir virða fyrir sér sýningarhrútana. Ljósmyndir: AF

Héraðssýningarnar á Vesturlandi haustið 2026 – Snæfellsnes vestan girðingar

Önnur héraðssýningin á Vesturlandi haustið 2026 var sýningin vestan girðingar á Snæfellsnesi. Nokkur ár eru síðan bændur í sýslunni austan girðingar sögðu sig úr lögum við þetta áratuga sýningahald á starfssvæði búnaðarsambandsins sem áður spannaði sýsluna alla. Félagsleg uppbygging er því miður hrunin og sýslum og búnaðarsamböndum slátrað.