Fréttir

true

Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) standa fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Vesturlands föstudaginn 16. október kl. 12–13. Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem hyggjast sækja um styrki til verkefna á Vesturlandi. Á fundinum verður farið yfir markmið sjóðsins, styrkjaflokka og úthlutunarreglur. Þá verður umsóknarferlið kynnt og veitt hagnýt ráð um hvernig standa megi að gerð…Lesa meira

true

Krakka Rökkur Rokk gekk glimrandi vel – myndasyrpa

Tónlistarvikunni Krakka Rökkur Rokk í Grundarfirði lauk með frábærum tónleikum í gær þar sem Skólakór Grunnskóla Grundarfjarðar steig á stokk ásamt hljómsveit. Síðustu viku hafa margir tónlistarviðburðir verið í Grundarfirði. Allt frá tónleikum í Tónlistarskóla Grundarfjarðar til nokkurra heimatónleika víðsvegar um bæinn. Skipuleggjendur eiga hrós skilið fyrir þetta frábæra framtak sem er hluti af Barnamenningarhátíð…Lesa meira

true

Tóku þátt í sundmóti Ægis

Bodyfuel-mót Ægis í sundi fór fram um síðustu helgi og átti Sundfélag Akraness þar glæsilega fulltrúa. Alls tóku 18 sundmenn frá SA þátt í mótinu og stóðu sig með mikilli prýði. „Góð stemning ríkti á mótinu, margir náðu persónulegum bætingum og okkar unga fólk sýndi flotta frammistöðu í lauginni. Rúna Björk, Eymar Ágúst og Ólöf…Lesa meira

true

Sárt tap Snæfells gegn KV í hörkuleik

Snæfell mátti sætta sig við svekkjandi fjögurra stiga tap, 98:102, gegn KV í 1. deild karla í körfuknattleik í Stykkishólmi á laugardag. Hólmarar höfðu lengst af frumkvæðið í fyrri hálfleik og náðu mest 13 stiga forskoti, en gestirnir sneru leiknum sér í hag í síðari hálfleik og fögnuðu að lokum naumum sigri. Snæfellingar hófu leikinn…Lesa meira

true

Árleg ormahreinsun hunda og katta í dag og á morgun

Árleg ormahreinsun hunda og katta fer fram að Ægisbraut 13 á Akranesi dagana 12. og 13. október. Hundar verða hreinsaðir mánudaginn 12. október frá kl. 15 til 20 og kettir þriðjudaginn 13. október frá kl. 15:30 til 20. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina, sem er innifalin í árlegu leyfisgjaldi dýranna. Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti…Lesa meira

true

Spá afleitu veðri á miðvikudaginn

Lægð sem nú þokast frá Bandaríkjunum í átt að Íslandi gæti dýpkað meira en áður hafði verið gert ráð fyrir. „Austan- og norðaustan hvassviðri eða stormur. Víða talsverð eða mikil rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Hiti 2 til 8 stig. Snýst í norðan storm norðvestantil á landinu seinnipartinn með slyddu eða…Lesa meira

true

Lýsa óánægju með skort á bílastæðum

Íbúar í fjölbýlishúsunum Kveldúlfsgötu 24-28 í Borgarnesi furða sig á að hefja á framkvæmdir við göngustíg í götunni án samráðs við þá. „Á föstudaginn við lok skrifstofu sveitarfélagsins kemur tilkynning inn á FB hóp okkar um að til standi að fara í framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24 til 30. Framkvæmd sem er í hrópandi mótsögn við…Lesa meira

true

Skagamenn burstuðu Skallagrím í Borgarnesi

Skagamenn fóru mikinn þegar þeir heimsóttu Skallagrím í Borgarnes á föstudagskvöldið og unnu stórsigur, 111:74, í annarri umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. ÍA hefur þar með unnið báða leiki sína í upphafi tímabilsins og sýnt mikinn styrk í sínum sóknarleik. Skagamenn, undir stjórn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar, höfðu mikla yfirburði í Vesturlandsslagnum og sigruðu að…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn eftir erfiða byrjun

Skagamenn sýndu seiglu og unnu upp tveggja marka forskot Víkings þegar liðin skildu jöfn, 2:2, á Víkingsvelli í Fossvogi í gærkvöldi. Leikurinn var liður í 25. umferð Bestu deildar karla, en Víkingar höfðu þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. ÍA er áfram í fimmta sæti deildarinnar og heldur í vonina um Evrópusæti. Heimamenn hófu leikinn af miklum…Lesa meira

true

Hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið

Fjórtán nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið 2026. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. „Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og…Lesa meira