Sárt tap Snæfells gegn KV í hörkuleik

Snæfell mátti sætta sig við svekkjandi fjögurra stiga tap, 98:102, gegn KV í 1. deild karla í körfuknattleik í Stykkishólmi á laugardag. Hólmarar höfðu lengst af frumkvæðið í fyrri hálfleik og náðu mest 13 stiga forskoti, en gestirnir sneru leiknum sér í hag í síðari hálfleik og fögnuðu að lokum naumum sigri.