
Lýsa óánægju með skort á bílastæðum
Íbúar í fjölbýlishúsunum Kveldúlfsgötu 24-28 í Borgarnesi furða sig á að hefja á framkvæmdir við göngustíg í götunni án samráðs við þá. „Á föstudaginn við lok skrifstofu sveitarfélagsins kemur tilkynning inn á FB hóp okkar um að til standi að fara í framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24 til 30. Framkvæmd sem er í hrópandi mótsögn við þær aðgerðir sem gerðar hafa verið til að koma til móts við „stóra skipulagsklúðrið“ hjá Borgarbyggð varðandi Kveldúlfsgötu 30,“ skrifar Arnar Grétarsson sem er meðal formanna í húsfélögunum sem í hlut eiga. Skipulagsklúðrið sem hann vísar til er að fyrrum sveitarstjórn heimilaði að byggt yrði stærra fjölbýlishús á lóðinni Kveldúlfsgötu 30 en gert hafði verið ráð fyrir í skipulagi. Arnar segir að ekki hafi verið hlustað á mótmæli íbúa vegna stækkunar hússins og segir að stærra fjölbýlishús þýði að skortur verður á bílastæðum. Hann segir þann skort þegar hafa komið í ljós þótt ekki sé flutt inn í allar íbúðir í nýja fjölbýlishúsinu við Kveldúlfsgötu 30.
Arnar segir að á síðasta ári hafi verið malbikuð renna meðfram kirkjugarðinum, sem er handan við götuna, og var almenn ánægja með þá framkvæmd, enda urðu þar til um tíu malbikuð bílastæði. „Borgarbyggð hefur nú ákveðið að bruðla með skattfé í tilganglausa framkvæmd sem er auk þess í óþökk allra sem ég hef heyrt í við Kveldúlfsgötu 24-28. Nú skal nýja malbikið rifið upp til að gera upphækkaða gangstétt þar sem bílastæðin áttu að vera. Mér er fyrirmunað að skilja tilganginn með þessum göngustíg því flestir sem eru á leiðinni á leiksvæðið úr Kveldúlfsgötunni koma eftir göngustígnum milli blokkanna og þvera síðan bílastæðið hjá Kveldúlfsgötu 24 (sjá mynd – blá lína). Að vísu mætti endilega klára að gera göngustíginn alla leið (sjá mynd – gul lína),“ segir Arnar. Hann kveðst sakna þess að sjá merki í fundargerðum um væntanlega framkvæmd. „Það er krafa íbúa við Kveldúlfsötu að Borgarbyggð falli frá þessu glórulausu framkvæmd og noti skattféð okkar frekar í að laga eitthvað af þeim fjölmörgu götum og gangbrautum í Borgarnesi sem sárlega þarfnast viðhalds. Við viljum að sveitarfélagið virði sáttina sem hafði verið gerð í þessu bílastæðaágreiningi við okkur íbúana.“
