
Árleg ormahreinsun hunda og katta í dag og á morgun
Árleg ormahreinsun hunda og katta fer fram að Ægisbraut 13 á Akranesi dagana 12. og 13. október. Hundar verða hreinsaðir mánudaginn 12. október frá kl. 15 til 20 og kettir þriðjudaginn 13. október frá kl. 15:30 til 20. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina, sem er innifalin í árlegu leyfisgjaldi dýranna. Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti er eigendum hunda og katta skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega.