
Spá afleitu veðri á miðvikudaginn
Lægð sem nú þokast frá Bandaríkjunum í átt að Íslandi gæti dýpkað meira en áður hafði verið gert ráð fyrir. „Austan- og norðaustan hvassviðri eða stormur. Víða talsverð eða mikil rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Hiti 2 til 8 stig. Snýst í norðan storm norðvestantil á landinu seinnipartinn með slyddu eða snjókomu og einnig á Norðausturlandi seint um kvöldið. Kólnandi veður,“ segir í textaspá Veðurstofunnar fyrir miðvikudaginn.
Gangi spáin eftir gæti lægðin orðið sú krappasta sem gengur hefur yfir landið í októbermánuði í rúm sextíu ár. „Vont eða ekkert ferðaveður verður á landinu,“ segir Teitur Arason veðurfræðingur í samtali við fréttavefinn ruv.is. „Það er að vænta óveðurs í sem allra stystu máli. Það er væntanleg úr suðri mjög djúp og mjög kröpp lægð,“ segir Teitur. Miðja lægðarinnar fer líklega yfir austanvert landið. „Fyrri partinn á miðvikudeginum er útlit fyrir austan hvassviðri eða storm með talsverðri eða mikilli rigningu á láglendi og það gæti orðið hríð til fjalla.“ Eftir því sem miðja lægðarinnar færist yfir austurhluta landsins snýst í norðanátt á Vestfjörðum og Norðvesturlandi. Þá bætist við kalt vatn úr norðri og rigningin verður að snjókomu. Þá fer snælínan langleiðina niður að sjávarmáli á norðvestanverðu landinu á miðvikudagskvöldið.
Fólk er hvatt til að fylgjast með spám í dag og á morgun til að búa sig undir veðrið.