
Mikið fjör var í uppklappslaginu þegar allir söngvarar kvöldsins voru komnir upp á svið og fluttu lagið Sweet child o‘mine eftir Guns n‘Roses. Texti og myndir: TFK
Krakka Rökkur Rokk gekk glimrandi vel – myndasyrpa
Tónlistarvikunni Krakka Rökkur Rokk í Grundarfirði lauk með frábærum tónleikum í gær þar sem Skólakór Grunnskóla Grundarfjarðar steig á stokk ásamt hljómsveit. Síðustu viku hafa margir tónlistarviðburðir verið í Grundarfirði. Allt frá tónleikum í Tónlistarskóla Grundarfjarðar til nokkurra heimatónleika víðsvegar um bæinn. Skipuleggjendur eiga hrós skilið fyrir þetta frábæra framtak sem er hluti af Barnamenningarhátíð Vesturlands.