Fréttir

true

Skagamenn hófu tímabilið með stórsigri

ÍA hóf keppni í 1. deild karla í körfuknattleik með glæsibrag þegar liðið vann Selfoss 106:77 í AvAir-höllinni á Akranesi á föstudaginn. Skagamenn tóku frumkvæðið strax, leiddu 25:17 eftir fyrsta leikhluta og 44:37 í hálfleik. ÍA gerði síðan út um leikinn með frábærum þriðja leikhluta sem liðið vann 32:17. Skagamenn héldu áfram að bæta við…Lesa meira

true

Snæfell með tap gegn KFG í fyrsta leik

Snæfell tapaði fyrir KFG, 97:82, í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn í Garðabæ. Þetta var fyrsti leikur liðanna á mótinu. KFG hafði frumkvæðið framan af og leiddi 23:18 eftir fyrsta leikhluta og 46:35 í hálfleik. Snæfellingar komu ákveðnir til leiks eftir hlé og unnu þriðja leikhlutann 27:22. Þar með var munurinn kominn niður…Lesa meira

true

Gjaldskrárhækkanir að hámarki 2,5%

Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti á fundi sínum 1. október að almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki að hámarki um 2,5% árið 2027. Sú ákvörðun verður lögð til grundvallar við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. Með þessu vill sveitarfélagið leggja sitt af mörkum í sameiginlegu átaki til að draga úr verðbólgu og vöxtum, verja kaupmátt heimilanna og stuðla að því…Lesa meira

true

Landsnet boðar til tveggja íbúafunda vegna lagningar Vegamótalínu 2

Landsnet býður til tveggja opinna kynningarfunda og vinnustofa vegna valkostagreiningar fyrir Vegamótalínu 2 milli Vatnshamra í Andakíl og Vegamóta á Snæfellsnesi. Línan verður byggð sem 132 kV loftlína og henni haldið uppi með stöguðum stálröramöstrum. Fyrst um sinn verður hún rekin á 66 kV. „Markmið með framkvæmdinni er að tryggja tvítengingu Snæfellsness og að auka…Lesa meira

true

Heitavatnsborun að hefjast við Langasand

Á vegum Veitna hefst á næstu dögum undirbúningur á verkstað og jarðvegsframkvæmdir vegna rannsóknarborunar eftir heitu vatni við Langasand á Akranesi. Frá því er greint á vef Akraneskaupstaðar að fyrstu vörubílum verði ekið á framkvæmdasvæðið í þessari viku vegna undirbúnings borplans. Akraneskaupstaður er búinn að gefa út framkvæmdaleyfi vegna borunarinnar, en tilgangur með framkvæmdinni er…Lesa meira

true

Frystir í nótt og líkur á hálku á vegum inn til landsins

Í dag er spáð norðan 3-8 m/s vindi á vestanverðu landinu og bjartviðri. Norðvestan 8-13 m/sek í norðausturfjórðungi landsins og rigning nærri sjávarmáli, en slydda eða snjókoma til fjalla. Rigning suðaustanlands framan af degi, síðan úrkomulítið. Hiti frá einu stigi í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst. Hægari vindur í kvöld og kólnar,…Lesa meira

true

Nýr sjóvarnargarður risinn á Grundartanga

Framkvæmdum við nýjan sjóvarnargarð á Grundartanga er lokið. Yfir 200 þúsund rúmmetrar af kjarna og grjóti fóru í framkvæmdina. Garðurinn er hluti af nýrri flæðigryfju og styður við áframhaldandi þjónustu við iðnfyrirtækin á svæðinu. Sjóvarnargarðurinn var byggður vestan við núverandi garð Faxaflóahafna. Verkið fólst meðal annars í vinnslu og flokkun á kjarna og grjóti sem…Lesa meira

true

Samvera skiptir máli – opið hús í Miðgarði á morgun

Það þarf ekki alltaf mikið til að gera daginn betri. Góður kaffibolli, spjall, hlátur og samvera með öðru fólki geta skipt meira máli en margan grunar. Félagsstarf fyrir 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit er einmitt vettvangur fyrir slíkar stundir og næsta opna hús verður í félagsheimilinu Miðgarði þriðjudaginn 6. október kl. 12:15. Félagsleg tengsl…Lesa meira

true

Boðar breytingar á skipulagslögum

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum. Frumvarpið er hluti af stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðgerðum stjórnvalda í húsnæðimálum. „Markmiðið er að aðlaga skipulagslöggjöfina að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem við á,“ segir í tilkynningu. „Við erum að einfalda málsmeðferð,…Lesa meira

true

Safna gleraugum í október

Október er sjónverndarmánuður Lions og af því tilefni stendur Lionshreyfingin á Íslandi fyrir söfnun á notuðum gleraugum. Lionsklúbburinn Rán í Snæfellsbæ tekur þátt í átakinu og hefur komið fyrir söfnunarkössum í Apótekinu og Kassanum. Gleraugun verða send til Danmerkur þar sem þau eru flokkuð og lagfærð eftir þörfum áður en þau eru send áfram til…Lesa meira