
Landsnet boðar til tveggja íbúafunda vegna lagningar Vegamótalínu 2
Landsnet býður til tveggja opinna kynningarfunda og vinnustofa vegna valkostagreiningar fyrir Vegamótalínu 2 milli Vatnshamra í Andakíl og Vegamóta á Snæfellsnesi. Línan verður byggð sem 132 kV loftlína og henni haldið uppi með stöguðum stálröramöstrum. Fyrst um sinn verður hún rekin á 66 kV. „Markmið með framkvæmdinni er að tryggja tvítengingu Snæfellsness og að auka afhendingaröryggi. Í dag er Vegamótalína 1 eina tenging flutningskerfisins fyrir Snæfellsnes,“ segir í tilkynningu frá Landsneti. Þá segir að með Vegamótalínu 2 skapist betri skilyrði til viðhalds og áframhaldandi reksturs Vegamótalínu 1 og mun hún standa áfram. Eins og með allar eldri línur mun Vegamótalína 1 fara á endurnýjunaráætlun.
Í tilfelli Vegamótalínu 2 er jarðstrengur ekki möguleg lausn, hvorki að hluta til né alla leið. Ástæða þess er að jarðstrengir framleiða launafl sem veldur spennuhækkun. Kerfið á Snæfellsnesi er nú þegar við efri spennumörk og ræður ekki við frekari hækkun.
Opnir kynningarfundir fyrir íbúa verða á Hótel Hamri í Borgarnesi miðvikudaginn 7. október klukkan 20. Síðari fundurinn verður í Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi mánudaginn 12. október kl. 20:00. Á fundunum verður verkefnið kynnt og vinnan fram undan. Að kynningu lokinni verður unnið í smærri hópum þar sem þátttakendur geta komið á framfæri hugmyndum að línuleiðum og bent á helstu áskoranir við leiðarval á svæðinu. „Markmiðið er að fá fram ólík sjónarmið snemma í ferlinu. Allar tillögur verða metnar út frá sömu forsendum, meðal annars með tilliti til umhverfis, öryggis og hagkvæmni, verðmæta og samfélags. Valkostagreiningin fer fram áður en hið lögbundna umhverfismatsferli hefst og mun nýtast við rannsóknir og frekari greiningar verkefnisins.“