
Frystir í nótt og líkur á hálku á vegum inn til landsins
Í dag er spáð norðan 3-8 m/s vindi á vestanverðu landinu og bjartviðri. Norðvestan 8-13 m/sek í norðausturfjórðungi landsins og rigning nærri sjávarmáli, en slydda eða snjókoma til fjalla. Rigning suðaustanlands framan af degi, síðan úrkomulítið. Hiti frá einu stigi í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst. Hægari vindur í kvöld og kólnar, víða verður frost í nótt, einkum inn til landsins. Meðfylgjandi hitamynd af vef Veðurstofunnar gildir fyrir klukkan 6 í fyrramálið. Eins og sjá má verður mest14 gráðu frost á Hveravöllum, en frost víða inn til landsins.
Fæstir ökumenn eru komnir með vetrardekkin undi bíla sína og ættu að hafa í huga þegar líður á kvöldið að hált getur orðið á vegum. Á morgun verður svo hæg breytileg átt og yfirleitt þurrt og bjart veður, en stöku skúrir við suðurströndina. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn.