
Sjóvarnargarðurinn á Grundartanga. Ljósm. Faxaflóahafnir / Arnar Valdimarsson
Nýr sjóvarnargarður risinn á Grundartanga
Framkvæmdum við nýjan sjóvarnargarð á Grundartanga er lokið. Yfir 200 þúsund rúmmetrar af kjarna og grjóti fóru í framkvæmdina. Garðurinn er hluti af nýrri flæðigryfju og styður við áframhaldandi þjónustu við iðnfyrirtækin á svæðinu. Sjóvarnargarðurinn var byggður vestan við núverandi garð Faxaflóahafna. Verkið fólst meðal annars í vinnslu og flokkun á kjarna og grjóti sem flutt var í garðstæðið og nýtt til uppbyggingar garðsins. Jafnframt var lagður vinnuvegur að vestari enda sjóvarnargarðsins. Lífrænn jarðvegur var fjarlægður ofan af klöpp og fluttur í mön vestan við grjótnámssvæðið.