Skagamenn hófu tímabilið með stórsigri

ÍA hóf keppni í 1. deild karla í körfuknattleik með glæsibrag þegar liðið vann Selfoss 106:77 í AvAir-höllinni á Akranesi á föstudaginn. Skagamenn tóku frumkvæðið strax, leiddu 25:17 eftir fyrsta leikhluta og 44:37 í hálfleik. ÍA gerði síðan út um leikinn með frábærum þriðja leikhluta sem liðið vann 32:17. Skagamenn héldu áfram að bæta við forskotið í lokafjórðungnum og fögnuðu að lokum öruggum 29 stiga sigri.