
Borað verður niður á þeim stað sem vatnspósturinn er núna við Jaðarsbraut. Ljósm. mm
Heitavatnsborun að hefjast við Langasand
Á vegum Veitna hefst á næstu dögum undirbúningur á verkstað og jarðvegsframkvæmdir vegna rannsóknarborunar eftir heitu vatni við Langasand á Akranesi. Frá því er greint á vef Akraneskaupstaðar að fyrstu vörubílum verði ekið á framkvæmdasvæðið í þessari viku vegna undirbúnings borplans. Akraneskaupstaður er búinn að gefa út framkvæmdaleyfi vegna borunarinnar, en tilgangur með framkvæmdinni er að kanna hvort nýtanlegan jarðhita sé að finna á þessum stað. Holan verður boruð niður á um 800 - 1.200 metra dýpi. Fram hefur komið að eftirspurn eftir heitu vatni fyrir Akranes og Borgarfjörð hefur aukist og er borunin liður í undirbúningi Veitna að frekari öflun heits vatns fyrir veituna.