Hitað upp fyrir leik. Ljósm. Snæfell

Snæfell með tap gegn KFG í fyrsta leik

Snæfell tapaði fyrir KFG, 97:82, í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn í Garðabæ. Þetta var fyrsti leikur liðanna á mótinu. KFG hafði frumkvæðið framan af og leiddi 23:18 eftir fyrsta leikhluta og 46:35 í hálfleik. Snæfellingar komu ákveðnir til leiks eftir hlé og unnu þriðja leikhlutann 27:22. Þar með var munurinn kominn niður í sex stig fyrir lokafjórðunginn. Heimamenn reyndust hins vegar sterkari á lokasprettinum, unnu síðasta leikhlutann 29:20 og tryggðu sér 97:82 sigur.