
Boðar breytingar á skipulagslögum
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum. Frumvarpið er hluti af stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðgerðum stjórnvalda í húsnæðimálum. „Markmiðið er að aðlaga skipulagslöggjöfina að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem við á,“ segir í tilkynningu.