Fréttir

true

Samvera skiptir máli – opið hús í Miðgarði á morgun

Það þarf ekki alltaf mikið til að gera daginn betri. Góður kaffibolli, spjall, hlátur og samvera með öðru fólki geta skipt meira máli en margan grunar. Félagsstarf fyrir 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit er einmitt vettvangur fyrir slíkar stundir og næsta opna hús verður í félagsheimilinu Miðgarði þriðjudaginn 6. október kl. 12:15. Félagsleg tengsl…Lesa meira

true

Boðar breytingar á skipulagslögum

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum. Frumvarpið er hluti af stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðgerðum stjórnvalda í húsnæðimálum. „Markmiðið er að aðlaga skipulagslöggjöfina að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem við á,“ segir í tilkynningu. „Við erum að einfalda málsmeðferð,…Lesa meira

true

Safna gleraugum í október

Október er sjónverndarmánuður Lions og af því tilefni stendur Lionshreyfingin á Íslandi fyrir söfnun á notuðum gleraugum. Lionsklúbburinn Rán í Snæfellsbæ tekur þátt í átakinu og hefur komið fyrir söfnunarkössum í Apótekinu og Kassanum. Gleraugun verða send til Danmerkur þar sem þau eru flokkuð og lagfærð eftir þörfum áður en þau eru send áfram til…Lesa meira

true

Vilja koma heilsueflingu inn á heimilin

„Ein æfing á dag fyrir betri heilsu“ – í nýju hreyfidagatali Sjúkraþjálfararnir Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Svandís Björk Guðmundsdóttir hafa gefið út hreyfidagatal fyrir eldra fólk þar sem einfaldleikinn er hafður að leiðarljósi; ein æfing á dag sem tekur aðeins örfáar mínútur. Markmiðið er að lækka þröskuldinn að reglulegri hreyfingu og ná sérstaklega til þeirra…Lesa meira

true

Ræða framtíð hátíða og menningarhúsa í Dölum

Menningarmálanefnd Dalabyggðar hefur boðað til íbúafundar fimmtudaginn 8. október kl. 18 þar sem ræða á framtíð menningarhátíða og menningarhúsa í sveitarfélaginu. Fundurinn verður opinn öllum íbúum og fer fram í stjórnsýsluhúsinu við Miðbraut 11 í Búðardal. „Við hvetjum alla sem hafa áhuga á menningu og menningarstarfi til að mæta og taka þátt í samtalinu,“ segir…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Heima Skagi hefur aldrei verið stærri

Stefnir að 29 tónleikum í 12 mismunandi húsum á einni kvöldstund Hin árlega tónlistarhátíð Heima – Skagi fer fram laugardaginn 31. október næstkomandi. Um er að ræða hátíð sem fram fer í 12 heimahúsum en sú nýbreytni verður að þessu sinni að lokatónleikar hátíðarinnar með Á móti sól fara fram í iðnaðarhúsnæði Kapp við Krókalón.…Lesa meira

true

Ungt fólk leiðir samtal kynslóða 10. október

Landsmönnum á öllum aldri er boðið að hittast um land allt og ræða spurninguna: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Laugardaginn 10. október, frá kl. 14 til 17, verður efnt til Samtals um allt land. Ungt fólk leiðir samtölin en öllum kynslóðum er boðið að taka þátt, hlusta á ólík sjónarmið og ræða hvað hvert…Lesa meira

true

Fjölskyldusirkus í Dalabúð í dag

Fjölskyldusirkusdagur verður haldinn í Dalabúð í Búðardal í dag, föstudaginn 2. október frá kl. 15:00–18:30. Þar mun Carla Maeso leiða fjölskylduvæna vinnustofu þar sem þátttakendur fá að kynnast þremur ólíkum greinum sirkuslistarinnar og spreyta sig sjálfir. Carla hefur numið sirkuslistir við tvo evrópska sirkusskóla og miðlar þar af reynslu sinni. Vinnustofan er ætluð fólki á…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í Íþróttaviku í Dalabyggð

Dalabyggð var með þétta dagskrá í Íþróttavika Evrópu, en hún fer að jafnaði fram ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að…Lesa meira

true

Formleg setning Barnamenningarhátíðar Vesturlands

Barnamenningarhátíð Vesturlands var formlega sett í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík í gærkvöldi. Þar var hátíðinni hleypt af stað með fjörlegri dagskrá og gleði þar sem börn voru í aðalhlutverki. Barnó – Mest – Best barnamenningarhátíð Vesturlands mun í október fara fram víðs vegar um landshlutann og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en…Lesa meira