
Þessi mynd var tekin á Bessastöðum og er frá samtali sem haldið var til undirbúnings verkefninu.
Ungt fólk leiðir samtal kynslóða 10. október
Landsmönnum á öllum aldri er boðið að hittast um land allt og ræða spurninguna: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Laugardaginn 10. október, frá kl. 14 til 17, verður efnt til Samtals um allt land. Ungt fólk leiðir samtölin en öllum kynslóðum er boðið að taka þátt, hlusta á ólík sjónarmið og ræða hvað hvert okkar getur lagt af mörkum til mótunar framtíðarinnar. Samtal, félag til almannaheilla, stendur að verkefninu í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld. Hugmyndin kviknaði á Bessastöðum á fundi sem haldin var að frumkvæði forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, en hún jafnframt verndari verkefnisins.