Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi setti hátíðina. Texti og myndir: AF

Formleg setning Barnamenningarhátíðar Vesturlands

Barnamenningarhátíð Vesturlands var formlega sett í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík í gærkvöldi. Þar var hátíðinni hleypt af stað með fjörlegri dagskrá og gleði þar sem börn voru í aðalhlutverki. Barnó – Mest - Best barnamenningarhátíð Vesturlands mun í október fara fram víðs vegar um landshlutann og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en 65 fjölbreytt atriði sem ætluð eru börnum og ungmennum frá leikskólaaldri og upp í 18 ára.