
Ræða framtíð hátíða og menningarhúsa í Dölum
Menningarmálanefnd Dalabyggðar hefur boðað til íbúafundar fimmtudaginn 8. október kl. 18 þar sem ræða á framtíð menningarhátíða og menningarhúsa í sveitarfélaginu. Fundurinn verður opinn öllum íbúum og fer fram í stjórnsýsluhúsinu við Miðbraut 11 í Búðardal. „Við hvetjum alla sem hafa áhuga á menningu og menningarstarfi til að mæta og taka þátt í samtalinu,“ segir í tilkynningu frá nefndinni.