
Margt var um manninn í sundlauginni. Ljósm. Dalabyggð
Fjölbreytt dagskrá í Íþróttaviku í Dalabyggð
Dalabyggð var með þétta dagskrá í Íþróttavika Evrópu, en hún fer að jafnaði fram ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Hér að neðan er það helsta sem boðið var upp á í Dalabyggð í vikunni: