Fréttir

true

Sjúkrabíllinn orðinn allt of stór hluti af lífinu

„Heimilið er alltaf á vakt“ Vinir Lilju Grétu Norðdahl hafa hrundið af stað söfnun svo hún geti farið í sérhæfða meðferð á Írlandi við þrenndartaugaverk sem hefur sett sífellt meiri svip á líf hennar og fjölskyldunnar. Köstin geta verið svo hörð að kalla þarf á sjúkrabíl og á heimilinu hafa börnin þrjú lært hvert sitt…Lesa meira

true

Grundarfjörður í fararbroddi með blágrænar lausnir

Grundarfjörður vakti athygli á opnu málþingi LIFE Icewater verkefnisins, sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Bærinn er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi sem hefur sett sér skýra stefnu um innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í heilu þéttbýli. Á málþinginu var fjallað um leiðir til að bæta vatnsgæði og vistkerfi, efla flóðavarnir og innleiða blágrænar ofanvatnslausnir. Fulltrúar…Lesa meira

true

Nýir verktakar teknir við skólaakstri

Nýir verktakar tóku við skólaakstri í Hvalfjarðarsveit í haust eftir að útboði vegna þjónustunnar lauk 8. júlí síðastliðinn. Samningarnir gilda til vorsins 2031. Útboðið var unnið í samstarfi Hvalfjarðarsveitar og Fjársýslu ríkisins. Að því loknu var samið við Hópferðabíla Reynis Jóhannssonar ehf. um akstur á þremur leiðum og Ben og félaga ehf. um akstur á…Lesa meira

true

Hjáleið um Melasveitarveg í fyrramálið

Vegagerðin hefur gefið heimild til malbikunar á þjóðvegi 1 við Geldingaárveg að morgni föstudagsins 25. september. „Hjáleið verður um Melasveitarveg 505 (10-15 mín aukarúntur). Framkvæmd hefst kl. 05:30 og reiknað er með að henni verði lokið kl. 11:00 fyrir hádegi. Vinsamlegast virðið hraðatakmarkanir og merkingar á svæðinu,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Hvasst í vindstrengjum við fjöll

Snörp haustlægð gengur nú yfir sunnanvert landið með talsverðri úrkomu. Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, en ekki hér um suðvestanvert landið. Engu að síður má sjá á vindælum Vegagerðarinnar að sviptivindir fara langleiðina í 40 m/sek bæði á Kjalarnesi og 35 m/sek við Hafnarfjall. Við Hafursfell á sunnanverðu Snæfellsnesi slær vindur í 30…Lesa meira

true

Bilun kom upp í vélarrúmi

Í gærkvöldi var boðuð æfing hjá sjóbjörgunarflokki Björgunarfélags Akraness og stóð til að sigla inn á Hvalfjörð þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar tæki einnig þátt í æfingunni. Mannskapur var kominn um borð í björgunarskipið Kristrúnu frá Bjargi í Akraneshöfn þegar bilun kom upp í vélarrúmi. Reykur gaus upp og var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út…Lesa meira

true

Félagar úr slysavarnadeildum komu saman í Eyjum

Helgina 11. til 13. september komu 290 félagar úr slysavarnadeildum víðs vegar að af landinu saman í Vestmannaeyjum á Landsmóti slysavarnadeilda 2026. Mótið hófst síðdegis á föstudegi með heimsóknum á söfn og um kvöldið bauð bæjarstjórn Vestmannaeyja til móttöku í Eldheimum. Á laugardeginum tók við fjölbreytt dagskrá með erindum og málstofum. Þar var meðal annars…Lesa meira

true

Krakka Rökkur Rokk framundan í Grundarfirði

Það verður mikið um að vera í Grundarfirði dagana 5. – 11. október næstkomandi þegar tónlistarhátíðin Krakka – Rökkur – Rokk fer af stað. Hátíðin er runnin undan rifjum Einis Huga Guðbrandssonar sem er nemandi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Tónlistarskóla Grundarfjarðar og Tónlistarskóla Stykkishólms. Eini fannst vanta fleiri tónlistarviðburði fyrir ungt fólk á Vesturlandi og ákvað…Lesa meira

true

Þresking tilraunareita hófst á sunnudaginn

Síðastliðinn sunnudag hófst þresking á tilraunareitum í kornrækt á Hvanneyri. Þreskivélin er sérhönnuð til að vinna í tilraunareitum sem þessum, er smávaxin og viktar og mælir uppskeruna í hverjum reit. Verkefni þetta er hluti af nytja- og kynbótastarfi í rannsóknum á hvaða bygg- og hveititegundir henta best fyrir íslenskar aðstæður. Alls var í vor hveiti…Lesa meira

true

Sea Spirit væntanlegt á Akranes á föstudag

Skemmtiferðaskipið Sea Spirit, sem útgerðarfyrirtækið Poseidon gerir út, er væntanlegt til hafnar á Akranesi föstudaginn 25. september. Skipið er skráð í Portugal og tekur 114 farþega en 72 eru í áhöfn þess. Þetta verður fjórða skipakoman á Akranes í sumar. ATH! Fréttin hefur verið uppfærð m.t.t. réttrar dagsetningar.Lesa meira